DJ TKL á rokk.is

13.09.2008 19:45:22 / Minefield

Takmarkið

Það sem búið er að gerast hjá mér er það að ég er á leiðinni í meðferð á Teigi. Þetta er hugræn atferlis meðferð og byrjar á mánudaginn sem stendur í 6 vikur. Eins og er bý ég á takmarkinu og er búin að vera þar í tæpa 3 mánuði. Mér líður bara vel þessa daganna og er byrjaður að fara í kirkju sem heitir vegurinn. Ég er að reina að bæta vitundar samband mitt við guð eins og ég skila hann.
Ég er byrjaður að æfa karate aftur og það var bara vel tekið á móti mér. Fólki fanst bara gaman að sjá mig.
Annars ekkert annað að frétta.

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.06.2008 13:10:43 / Minefield

jæja

Hæ hó

Bara fínt að ganga hérna.
Ég hef nú ekkert rosalegt að segja.
Ég er kominn í nýja vinnu sem mér líkar ágætlega við og launin bara góð
Ég er ekki lengur sköllóttur og er farinn að geta sett djú í hárið og er bara flottur og kátur þessa daganna.

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 14:43:18 / Minefield

kominn með vinnu

Ég er byrjaður að vinna á kringlu kránni. Það er ágætt og er í stöðu aðstoðar kokks.:!::!::!: Hef ekkert mikið að segja.

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2008 16:55:59 / Minefield

Atvinnulaus

:| Gaman að sjá í gestabókin. Takk fyrir að kíkja.

Ég er atvinnulaus og er að leita að vinnu. Ef einhver veit um eitthað að gera þá væri ég feginn því ekki getur maður gert ekki neitt. Soldið leiðinlegt að vera búin að læra í 1 ár og 3 mánuði og geta ekki klára. Ég var búin að gera mér vonir um að vera góður kokkur. Ég er reindar að fara uppí MK að tala við kall sem veit um staði sem vantar nema. Ég er staðráðinn í því að klára kokkinn.

Takk fyrir kvittið.

Teddi Löve


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 23:35:41 / Minefield

Kominn heim

Ég og Ólöf fórum norður að hitta mömmu og jóa um helgina. Þau vissu ekki að við værum að koma og þegar við vorum fyrir utan hringdi ég og spurði hvort ég gæti fengið kaffisopa. Mammu fanst það bara fyndið og Jói spurði hvort ég gæti ekki downloadð mér þangað. Ég lagði á labbaði inn og sagði download complete. Það var bara gaman og ég fór á skíði í þoku og skafrening í Hlíðarfjalli. Það var svaka gaman og ég og littli bróðir fórum uppá topp og skíðuðum bara rólega niður. Það var ekki gott skigni en það tókst.

Ég var bara að koma heim og er að fara að sofa og undirbúa mig fyrir vinnuna á morgun.

http://rokk.is/default.asp?Flytjandi_ID=3884&sida=um_flytjanda
Hérna eru nýustu lögin mín..... :p:haha::$;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.03.2008 01:26:39 / Minefield

Hæ hæ

Ég var bara að koma úr vinnu. Það er Föstudagurinn langi og ég var að vinna á þeim degi. Ég verð að vinna líka á Páskadag. Það voru sona 80 manns í dag og það verður sona svipað næstu tvo daga. Eins og er get ég ekki sofið og er að fá mér te og hlusta á Eagles. Er að fara að sofa og mæta á æfingu á morgun. Ég er aftur farinn að æfa með Kr. í keilu. Ég fer á morgun að æfa áður en ég mæti í vinnu. Koma tækninni aftur upp og so fara að keppa og vinna peninga..... Jeiieieieieieieieieie:$

Annars allt gott að frétta og ást til allra ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.03.2008 22:01:17 / Minefield

Akureyri

Ég er á Akureyri núna og klukkan er 21:54. Ég fór um tólfleitið á skíði með littla bróður mínum í Hlíðarfjalli. Þetta var allgjör geðveiki og ég og brósi fórum strax upp á toppinn og hann kom mér mjög á óvart. Ég þurfti að rifja múfin upp og eftir klukkustund var ég farinn að bruna og sviga í bröttustu brekkunum sem ég er mjög stolltur af. Öll mín skíðakunnátta er sjálf kennd og littli bróðir sagði að ég væri mjög góður.;)

Ég er að fara að fá mér kókglas á mongó sem er einhver skemmti staður eða bar á Akureyri með Ólöfu. ég er að fara heim á morgun og vinna á mánudaginn. Jei og bráðum fer ég í skólann jeiiiiii8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 14:50:55 / Minefield

Myspace síðan mín

http://www.myspace.com/minefield_1

 

Þetta er nýja myspace síðan mín. Ég blogga þar líka


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.03.2008 00:57:56 / Minefield

góður dagur

Það var bara ágætur dagur í dag. Ég reindar svaf yfir mig og hlóp út í panikki niður í vinnu. Það var ekki þægileg tilfinning en dagurinn reyndist bara vera skemmtilegur. Allt gekk hratt fyrir sig og áður en ég vissi af var ég og ísak búnir að massa missann. Fallegir forréttir og desertarnir voru líka fallegir. Fólk var ánægt og gaman að vera til. Ég barðaði reindar hrátt brauðdeig og gerið í því fór ekki vel í magan á mér.


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 14:15:33 / Minefield

Nýt lag á www.rokk.is

Ég var að leggja lokahöndina á nýt lag sem er að fara að byrtast á rokk.is.
Það heitir I got my og fera að fara að byrtast í nýustu 22 lögunum í electro, hip hop og breakbeat dálkinum. Ég er líka með lag þar sem var meira djók sem heitir sleiktu mig. 
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 17:15:58 / Minefield

Halló

Ég er núna búin að vera að læra kokkinn 1 ár og 3 mánuði. Það hefur gengið bara vel og fer núna að stittast í það að ég fari í skólann. Um helgina vara food and fun helgi og það var gestakokkur á sjávarkjallaranum. Ég er að læra þar. Það er líka talað um að ég fari á Lækjarbrekku og það gæti bara orðið skemmtilegt. Ég er búin að vera á 2 stöðum. Torvaldsen og Sjávarkjallaranum og ef ég fer á þriðja staðinn (Lækjarbrekku) þá er það bara + í reynsluna.;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 03:05:12 / Minefield

Nýtt tækifæri

Ég fór á stað sem heitir Hótel borg og talaði við yfirkokkinn þar. Ég er að fara að prófa að kokka 2 jan eða eftir áramót. Ég fæ að fara á eina vakt og svo veit ég ekki meira. Það gæti litið út fyrir það að ég væri ekki að fara í FB þessa önn.

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.12.2006 03:25:26 / Minefield

Akureyri

Ég er búin að vera á Akureyri um Jólin. Hitti systurmína sem býr hér og það var bara gaman. Ég fékk flotta húfu sem ég á eftir að nota nokkuð mikið held ég og svo handútskorið tafl sem er flott. Það var góður matur og ég er búin að borða soldið mikið af smákökum. Ég er að fara aftur í skólann og hlakka bara til að taka aðra önn í FB. Veit ekki hvort ég reini eitthvað meira við kokkinn. Ég reindi nú ekkert mikið, bara einn stað. Ég er allavegannar að fara á aðra önn. bæbæ


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 00:52:41 / Minefield

Fastur á miðri leið

Ég er einhverstaðar á Hóteli. Veðrið varð svo svakalegt að það er ekki hægt að komast áfram eða snúa við. Við erum nú kominn hálfa leið svo það er ekkert siðugt að snúa við. Veðrið á eftir að skána á morgun so þá leggjum við í hann.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 23:22:44 / Minefield

Kokkið

Tíminn er ekki hliðhollur mér núna. Ég verð að borga næstu önn fyrir 28 og ég er enn ekki kominn á samning. Ég verð bara að bíða með það þangað til í sumar að fara að kokka nema að enn eitt kraftaverkið komi og ég næ að redda því. Annars er ég bara að fara á aðra önn í FB....... Það er allt í lagi..........


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Heimsóknir
Í dag:  14  Alls: 21487
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 5 október
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti